Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, hefur staðfest það að Thierry Henry vilji fá starfið hjá Bordeaux.
Bordeaux er að horfa í kringum sig þessa stundina en Gus Poyet var tímbundið settur í bann eftir að hafa hraunað yfir stjórn félagsins.
Wenger og Henry eru góðir félagar en þeir unnu saman hjá Arsenal og náðu frábærum árangri.
Henry hefur enn ekki tekið að sér starf sem aðalþjálfari en hann er aðstoðarþjálfari belgíska landsliðsins.
,,Hann vill taka þetta að sér. Hann er mjög klár og er með gæðin til að sinna þessu starfi,“ sagði Wenger.
,,Spurningin er hins vegar sú hvort við séum tilbúnir að gefa allt upp á bátinn fyrir þjálfaraferilinn.“