KA 0-1 KR
0-1 Kennie Chopart(67′)
KR vann sterkan sigur í Pepsi-deild karla í dag er liðið heimsótti KA í 17. umferð suimarsins.
KR gefst ekki upp í baráttu um Evrópusæti en liðið situr í fjórða sæti, fimm stigum á eftir Val sem á leik til góða.
Kennie Chopart sá um að tryggja KR stigin þrjú í dag en hann gerði eina mark leiksins í síðari hálfleik.
KA situr í sjöunda sæti deildarinnar eftir tapið með 22 stig og er í nokkuð öruggum málum um miðja deild.