Sevilla byrjar tímabilið á Spáni afar vel en liðið mætti Rayo Vallecano í fyrstu umferð í kvöld á útivelli.
Sevilla var í engum vandræðum með Rayo í kvöld og vann að lokum sannfærandi 4-1 sigur.
Framherjinn Andre Silva gekk í raðir Sevilla í sumar en hann gerði eins árs langan lánssamning við liðið.
Silva er samningsbundinn AC Milan en skoraði aðeins tvö mörk í 24 leikjum fyrir liðið á síðustu leiktíð.
Silva fékk því að fara annað á láni í sumar og gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrsta leik sínum í dag.
Silva er því strax búinn að bæta markamet sitt frá því á síðustu leiktíð eftir aðeins einn leik á Spáni!