Harry Kane, framherji Tottenham á Englandi, skoraði fyrir liðið í dag sem mætti Fulham í ensku úrvalsdeildinni.
Tottenham byrjar tímabilið afar vel þetta árið en liðið vann Newcastle í fyrstu umferð og var 3-1 sigur á Fulham niðurstaðan í dag.
Kane skoraði síðasta mark Tottenham í leiknum en hann er ekki þekktur fyrir það að skora í ágúst og hefur aldrei tekist það áður í efstu deild.
Kane hafði beðið í yfir 1000 mínútur eftir fyrsta markinu í ágúst en tókst loksins að skora í mánuðinum í dag.
Kane hafði ekki skorað í ágúst í 998 mínútur í ágúst fyrir leikinn í dag og var gert grín að því á samskiptamiðlum.
Enski framherjinn svaraði þó með marki og mun nú væntanlega raða inn mörkum alla mánuði ársins.