Burnley 1-0 Basaksehir(1-0 samanlagt)
1-0 Jack Cork(97′)
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley mættu tyrknenska liðinu Basaksehir í Evrópudeildinni í kvöld.
Um var að ræða síðari leik liðanna í undankeppninni en fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli í Tyrklandi.
Venjulegum leiktíma lauk einnig með markalausu jafntefli í dag en Jói Berg kom inná sem varamaður á 58. mínútu leiksins.
Það var miðjumaðurinn Jack Cork sem sá um að tryggja Burnley sigur í einvíginu en hann kláraði leikinn fyrir þá ensku í framlengingu á 97. mínútu.