Manchester United er að tryggja sér þrjú stig á opnunardegi ensku úrvalsdeildarinnar þetta árið.
United er að vinna Leicester City þessa stundina en staðan er orðin 2-0 eftir mark bakvarðarins Luke Shaw.
Paul Pogba kom United yfir snemma leiks úr vítaspyrnu og bætti Shaw við öðru undir lok leiksins.
Þetta var fyrsta mark Shaw í meistaraflokki en hann á að baki fjölmarga leiki fyrir Southampton og United.
Hér má sjá mark Shaw.
Luke Shaw Goal ⚽️ #mufc pic.twitter.com/c7wNwBuL6N
— ManUtdology (@ManUtdology) 10 August 2018