Luke Shaw skoraði í kvöld sitt fyrsta mark fyrir Manchester United í 2-1 sigri á Leicester City í ensku úrvalsdeildinni.
Shaw gerði annað mark United í 2-1 sigri en þetta var hans fyrsta mark í meistaraflokki á ferlinum.
,,Þetta er fyrsta markið mitt og mér er alveg sama um hvernig markið var,“ sagði Shaw.
,,Ég ætlaði að koma inn í völlinn en náði rétt svo að snerta boltann og setti hann svo í hornið.“
,,Kasper Schmeichel sagði við mig að ég hafi verið heppinn eftir leikinn en mér er sama. Þetta er það besta sem ég hef upplifað á ferlinum.“