Philippe Coutinho, leikmaður Barcelona, mun ekki leika í treyju númer 14 hjá félaginu á leiktíðinni.
Coutinho kom til Barcelona fyrir 120 milljónir evra í janúar en hann var áður hjá Liverpool.
Coutinho klæddist treyju númer 14 á síðustu leiktíð en hann hefur nú skipt yfir í sjöuna.
Arda Turan var síðasti leikmaður sem notaði treyju númer sjö hjá Barcelona en hann er nú farinn annað.
Þessi 26 ára gamli leikmaður skoraði spilaði 22 leiki fyrir liðið á síðustu leiktíð og skoraði tíu mörk.