Axel Witsel skrifaði í sumar undir samning við Borussia Dortmund eftir dvöl hjá Tianjin í Kína.
Witsel vildi komast aftur í Evrópuboltann en önnur lið höfðu áhuga á honum segir umboðsmaður Belgans, Paul Stefani.
Manchester United hafði áhuga á að fá Witsel í sínar raðir en hann kaus frekar að fara til Þýskalands.
,,Það komu önnur lið til greina, Manchester United vildi fá hann og líka Napoli,“ sagði Stefani.
,,Ég sagði við hann að hann yrði númer eitt hjá Dortmund. Hjá Arsenal og Napoli væri hann einn af mörgum.“