Varnarmaðurinn öflugi Jón Guðni Fjóluson hefur náð samkomulagi við rússnenska félagið FC Krasnodar.
Félagið greindi frá þessu í dag en Jón kemur til Krasnodar frá liði Norrkoping í Svíþjóð.
Jón hefur undanfarin tvö ár spilað með Norrkoping en hann var fyrir það á mála hjá GIF Sundsvall.
Þeir í Rússlandi eru hrifnir af íslenskum leikmönnum en Jón er fimmti Íslendingurinn sem spilar í úrvalsdeildinni þar.
Björn Bergmann Sigurðarson, Ragnar Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason og Hörður Björgvin Magnússon spila í deildinni.