Bakvörðurinn Bacary Sagna hefur skrifað undir samning við lið Montreal Impact í MLS deildinni.
Þetta var staðfest í dag en Sagna gerir eins árs langan samning við liðið með möguleika á framlengingu.
Sagna ættu flestir að þekkja en hann spilaði lengi með Arsenal áður en hann hélt til Manchester City árið 2014.
Sagna var alls í tíu ár í ensku úrvalsdeildinni en samdi við lið Benevento á Ítalíu fyrr á þessu ári.
Frakkinn gerði aðeins sex mánaða samning við Benevento og gat því farið til Montreal á frjálsri sölu.