Breiðablik 1-0 KR
1-0 Alexander Helgi Sigurðarson(69′)
Breiðablik er komið á toppinn í Pepsi-deild karla eftir sigur á KR í 15. umferð deildarinnar í kvöld.
Aðeins eitt mark var skorað í ansi rólegum fótboltaleik en það gerðu Blikar í síðari hálfleik.
Varamaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson skoraði þá mark fyrir Blika en hann átti fínt skot fyrir utan teig sem hafnaði í netinu.
Blikar eru nú með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar en bæði Stjarnan og Valur eiga leik til góða.