fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Pizarro velur athyglisvert númer hjá Bremen – Sjáðu ástæðuna

Victor Pálsson
Mánudaginn 30. júlí 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framherjinn Claudio Pizarro hefur skrifað undir samning við lið Werder Bremen í Þýskalandi.

Þessi 39 ára gamli leikmaður kemur til Bremen frá FC Köln þar sem hann spilaði 16 deildarleiki á síðustu leiktíð og gerði eitt mark.

Pizarro þekkir mjög vel til Bremen en hann skrifaði undir hjá félaginu í fjórða skiptið á ferlinum.

Pizarro var á mála hjá Bremen 1999-2001, 2008-2009, 2015-2017 og nú spilar hann með liðinu út næstu leiktíð.

Pizarro hefur einnig spilað fyrir Bayern Munchen og Chelsea en hann var frábær fyrir Bayern í sex ár frá 2001-2007.

Pizarro fagnar fertugsafmæli sínu í október en hann gerir eins árs samning við Bremen.

Það vekur athygli hvaða númer Perúmaðurinn mun klæðast hjá Bremen í þetta skiptið en hann valdi treyju númer fjögur.

Ástæðan er einföld en Pizarro fagnar því að vera kominn í fjórða skiptið til félagsins á ferlinum!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“