Pep Guardiola, stjóri Manchester City, reyndi mikið að fá miðjumanninn Jorginho í sumar sem endaði á að semja við Chelsea.
Guardiola hefur nú tjáð sig um þessa tilraun að fá Jorginho en viðurkennir að það hefðu verið mistök að fá hann á Etihad.
,,Ég er ekki vonsvikinn. Við reyndum að fá hann en leikmenn verða að fara þangað sem þeir vilja á endanum,“ sagði Guardiola.
,,Það hefðu verið mistök fyrir hann að koma hingað því hann vildi fara með Maurizio Sarri til Chelsea.“
,,Það er mikilvægt að enski boltinn hafi fengið frábæran leikmann og ef þeir vilja koma hingað þá ættu þeir að gera það.“