Maurizio Sarri er nú loksins að taka við liði Chelsea á Englandi eins og hefur verið rætt um í allt sumar.
Þetta hefur forseti Napoli, Aurelio De Laurentiis, nú staðfest en Sky Sports greinir frá þessum fregnum.
Sarri er að taka við Chelse af Antonio Conte en gengi liðsins á síðustu leiktíð var vægast sagt slakt.
Chelsea hefur verið í viðræðum við Napoli um að fá Sarri í margar vikur en það hefur gengið hægt fyrir sig.
Nú er loks eitthvað að gerast í þessum málum og mun Sarri taka við keflinu hjá Chelsea í þessari viku.