Vængmaðurinn Riyad Mahrez hefur skrifað undir samning við Englandsmeistara Manchester City.
Mynd af Mahrez skrifa undir hjá City birtist á netið í kvöld en hann hefur lengi verið orðaður við félagið.
Búist er við að kaupin verði tilkynnt mjög bráðlega en ljóst er að Mahrez er búinn að’ korta undir samning.
Mahrez var valinn besti leikmaður Englands árið 2016 er Leicester City fagnaði sigri í ensku úrvalsdeildinni.
Mahrez mun kosta sitt en City borgar 67 milljónir punda fyrir leikmanninn.