Juventus hefur staðfest að Emre Can gangi í raðir félagsins þann 1. júlí.
Þá er samningur hans á enda við Liverpool og kemur þýska stálið frítt til Ítalíu.
Can kom til Ítalíu í dag og gekkst undir læknisskoðun, hann skrifaði svo undir samning.
Can gerir fjögurra ára samning við Juventus en Liverpool reyndi mikið að halda honum.
Samningar tókust hins vegar ekki og því fór Can frítt frá Liverpool.
UFFICIALE – #EmreCan è bianconero! https://t.co/j7qhQJOB63 #WelcomeToJu pic.twitter.com/2KevXMRZIu
— JuventusFC (@juventusfc) June 21, 2018