Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní er í dag og er að sjálfsögðu mikið fagnað hér heima eins og á hverju ári.
Leikmenn íslenska landsliðsins eru þó ekki staddir hér á landi en hópurinn er eins og allir vita í Rússlandi.
Ísland tekur þátt í heimsmeistarakeppninni þar í landi en fyrsti leikur okkar manna var í gær gegn Argentínu.
Það er ástæða til að fagna úrslitum úr þeim leik en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Strákarnir okkar halda þó upp á 17. júní í Rússlandi og vbar boðið upp á íslenskar pönnukökur með rjóma og ís.
Knattspyrnusambandið birti skemmtilega mynd á Twitter í dag þar sem má sjá líf og fjör í eldhúsinu.
? Today is our independence day, June 17!
?? We celebrate it with Icelandic pancakes, ice cream and whipped cream!#fyririsland pic.twitter.com/9kC5VN1OFU
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) 17 June 2018