Mexíkó náði í glæsileg úrslit á heimsmeistaramótinu í Rússlandi í dag er liðið mætti Þýskalandi.
Þýskaland er talið til alls líklegt á mótinu en liðið vann keppnina í Brasilíu fyrir fjórum árum.
Mexíkó gerði sér þó lítið fyrir og vann leikinn í dag 1-0 þar sem Hirving Lozano gerði eina mark leiksins.
Javier Hernandez lagði upp mark Mexíkó í leiknum og var hann í skýjunum eftir lokaflautið.
Hernandez gat ekki stoppað sig frá því að gráta aðeins í leikslok enda gríðarlega stór úrslit fyrir Mexíkó.
Myndir af því má sjá hér.