Aleksandar Kolarov reyndist hetja Serba er liðið mætti Kosta Ríka í fyrsta leik dagsins á HM í Rússlandi.
Liðin eru í riðli með Brasilíu og Sviss og sigurinn því mikilvægur fyrir Serba.
Leikurinn var jafn en það voru Serbar sem voru að skapa sér hættulegri færi.
Það var svo vinstri bakvörðurinn, Kolarov sem skoraði geggjað aukaspyrnumark í síðari hálfleik.
Mikilvægur sigur í þessari fyrstu umferð en Serbar virðast vera með ansi öflugt lið.