FH vann flottan sigur í Pepsi-deild karla í kvöld er liðið fékk Víking Reykjavík í heimsókn í Hafnafjörðinn.
FH hafði betur með þremur mörkum gegn engu þar sem Jónatan Ingi Jónsson gerði tvö mörk fyrir heimamenn.
Hér má sjá það góða og slæma úr leiknum.
Plús:
FH-ingar unnu loksins leik! Höfðu gert fjögur jafntefli í röð en tókst að næla í þrjú stig í kvöld.
FH á auðvitað að vera að berjast á toppnum og nú er liðið aðeins tveimur stigum frá toppliði Vals. Þetta er allt að koma.
Eddi Gomes er að kveðja FH. Guð, þeir eiga eftir að sakna hans. Besti varnarmaður deildarinnar, á ekki heima hérna.
Jónatan Ingi Jónsson gerði tvennu fyrir FH í kvöld. Framtíðarstjarna. Virkilega efnilegur drengur sem þakkar traustið.
Mínus:
Einn sigur úr síðustu sjö leikjum hjá Loga Ólafs og félögum. Sætið er farið að hitna ansi mikið.
Víkingar eiga að vera þekktir fyrir það að vera með sterka vörn. Hafa lekið inn mörkum í síðustu leikjum og ekki er sóknin að bæta það upp.
Víkingar hafa aðeins skorað átta mörk í sumar. Aðeins eitt lið hefur skorað minna og þaðer botnlið Keflavíkur.