32 lið taka þátt í úrslitakeppninni.
736 leikmenn frá 311 liðum taka þátt að þessu sinni.
186 leikmenn, sem taka þátt að þessu sinni, voru með á HM í Brasilíu 2014.
16 leikmenn Manchester City taka þátt að þessu sinni en ekkert félagslið á fleiri leikmenn á mótinu. 15 leika með Real Madrid og 14 með Barcelona.
4 þeirra fæddust á áttunda áratug síðustu aldar. Þetta eru Essam El-Hadary (Egyptalandi), Rafael Márquez (Mexíkó), Sergei Ignasevich (Rússlandi) og Tim Cahill (Ástralíu).
Markmaður Króatíu, Lovre Kalinic, er hæsti leikmaður mótsins en hann er 201 cm.
Yahya al-Shehri er lægsti leikmaður mótsins en hann er 164 cm.
Brasilía hefur unnið HM fimm sinnum.
Ísland og Panama taka þátt í úrslitakeppni HM í fyrsta sinn.
3,2 milljarðar manna horfðu á sjónvarpsútsendingar frá keppninni 2014.
Miroslav Klose hefur skorað flest mörk allra í úrslitakeppni HM eða 16 talsins.
Mohammed al-Sahlawi, Egyptalandi, skoraði 16 mörk í 14 leikjum Egypta í undankeppninni.