Það ættu flestir að vita að heimsmeistaramótið í Rússlandi er að hefjast en opnunarleikurinn er í dag.
Aðeins einn leikur er á dagskrá í riðlakeppninni í dag en alvöru veislan hefst svo á morgun með frábærum leikjum.
Gestgjafar Rússlands spila opnunarleikinn í dag gegn Sádí Arabíu en liðin leika í riðli A.
Hér má sjá byrjunarliðin í þeim leik.
Rússland: Akinfeev, Fernandes, Kutepov, Igansevich, Zhirkov, Gazinskiy, Zobnin, Samedov, Golovin, Dzagoev, Smolov
Sádí Arabía: Al-Maiouf, Alburayk, Os.Hawsawi, Om.Hawsawi, Al-Shahrani, Otayf, Al-Dawsari, Al-Faraj, Al-Jassam, Al-Shehri, Al-Sahlawi