Manchester United er enn ríkasta félag heims en árlegur listi Forbes yfir ríkustu félögin hefur verið gefinn út.
United heldur toppsætinu en liðið var einnig ríkast á síðasta ári á undan bæði Barcelona og Real Madrid.
Real Madrid var í fjögur ár ríkasta félag heims en þurfti að sætta sig við þriðja sætið á síðasta ári.
Listinn er óbreyttur frá árinu 2017 fyrir utan það að Real tekur fram úr Barcelona og fer í annað sætið.
Sex ensk félög eru í efstu tíu sætunum, tvö spænsk og svo eitt frá Ítalíu og eitt frá Þýskalandi.
Listann má sjá hér.