Anthony Martial mun líklega yfirgefa Manchester United í sumar en hann er orðinn þreyttur á litlum spilatíma.
Martial hefur verið orðaður við brottför í sumar en hann var ekki fyrsti maður á blað hjá Jose Mourinho á síðustu leiktíð.
Umboðsmaður leikmannsins hefur nú staðfest það að hann vilji komast annað fyrir næstu leiktíð.
,,Eftir að hafa íhugað alla möguleika þá hefur Anthony ákveðið að hann vilji yfirgefa Manchester United,“ sagði umboðsmaðurinn við RMC Sport.
Nokkur félög hafa sýnt leikmanninum áhuga og er Chelsea talið fylgjast grant með gangi mála.