Lionel Messi er nafn sem allir kannast við en hann er af mörgum talinn besti knattspyrnumaður heims.
Messi mun spila með Argentínu á HM í sumar og spilar á meðal annars við íslenska landsliðið.
Messi á marga stuðningsmenn um allan heim en einn maður ákvað að fara skrefinu lengra á dögunum.
Hann ákvað þá að láta raka andlit Messi í hnakkann á sér í tilefni af því að HM sé að hefjast.
Rakarinn Mario Hvala er þekktur fyrir að raka andlit leikmanna í hár aðdáenda en hann sér um rakarastofu í Serbíu.
Mynd af listaverkinu má sjá hér.