Thiago Silva, fyrirliði Paris Saint-Germain, er opinn fyrir því að snúa aftur til Ítalíu og spila fyrir AC Milan.
Silva var frábær fyrir Milan á sínum tíma áður en PSG keypti hann fyrir 42 milljónir evra árið 2012.
Silva er í dag 33 ára gamall og er klárlega opinn fyrir því að spila fyrir Milan áður en ferlinum lýkur.
,,Hvernig gæti ég sagt nei við Milan? Þetta lið mun alltaf eiga stað í mínu hjarta,“ sagði Silva.
,,Ég gæti kannski snúið aftur til að enda ferilinn þar. Það yrði frábært.“