Bernd Leno, markvörður Bayer Leverkusen, er sterklega orðaður við Arsenal þessa dagana.
Unai Emery vill fá nýjan markvörð inn í sumar en frammistaða Petr Cech hefur ekki þótt vera nógu góð.
Leno er talinn vera á óskalista Arsenal og er sagt að félagið sé búið að hafa samband við Leverkusen vegna leikmannsins.
Það vekur þó athygli að Leno gerir mörg mistök en hann hefur gert níu mistök síðustu þrjú tímabil sem hafa kostað mörk.
Aðeins einn markvörður, Oliver Baumann, hefur gert fleiri mistök í efstu deild í Þýskalandi eða tíu talsins.
Leno er þó talinn vera góður markvörður en á það til að gera slæm mistök sem kosta stig.