Heimsmeistaramótið árið 2026 í karlaflokki veðrur haldið í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada.
Þjóðirnar þrjár höfðu betur gegn Marokkó í kosningu í dag.
Þetta verður í fyrsta sinn sem mótið verður í Kanada en mótið hefur verið í Mexíkó og Bandaríkjunum.
Mótið verður afar stórt en 48 þjóðir verða með og farið verður í 32 liða úrslit.
Mótið í ár er í Rússlandi og árið 2022 verður mótið Í Katar.