Arsenal er í viðræðum við miðjumanninn Lucas Torreira samkvæmt öruggum heimildum Sky Sports.
Torreira er 22 ára gamall leikmaður Sampdoria en hann mun kosta Arsenal 26,5 milljónir punda.
Torreira er frá Úrúgvæ og mun spila með landsliðinu á HM í Rússlandi sem hefst eftir tvö daga.
Torreira gekk í raðir Sampdoria frá Pescara árið 2015 og hefur síðan þá leikið 74 leiki fyrir félagið.
Arsenal hefur nú þegar fengið til sín einn leikmann í sumar en það er bakvörðurinn Stephan Lichtsteiner sem kom frítt frá Juventus.