,,Fyrstu kynni af Rússlandi eru mjög góð, framar vonum,“ sagði markahrókurinn, Alfreð Finnbogason fyrir æfingu íslenska landsliðsins í Rússlandi í dag.
Strákarnir okkar hefja leik á Heimsmeistaramótinu á laugardag þegar liðið mætir Argentínu.
Vel fer um strákana okkar sem komu til Rússlands á laugardag og er öll umgjörð fyrsta flokks.
Meira:
Alfreð var undirbúinn undir allt – ,,Ekkert til að kvarta yfir“
Alfreð Finnbogason hefur sett skemmtilegt myndband á INstagram þar sem hann er að kenna útlendingum okkar fagra tungumál.
Mark og getur þú rétt mér bjór eru frasar sem þessi magnaði leikmaður fer yfir. Myndband af því er hér að neðan.