Kylian Mbappe, efnilegur leikmaður Frakklands, þurfti að yfirgefa æfingu liðsins í dag, aðeins nokkrum dögum fyrir HM.
Mbappe meiddist eftir viðskipti við Adil Rami á æfingu og er nú talað um að hann gæti misst af keppninni.
Mbappe lagðist í grasið sárþjáður eftir að hafa meiðst en að svo stöddu er ekki vitað hversu alvarleg meiðslin eru.
Aðeins fjórir dagar eru í að HM hjá Frökkum fari af stað en liðið mætir Ástralíu í fyrsta leik.
Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, hefur enn 24 tíma til að breyta sínum hóp ef Mbappe er meiddur.