Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:
,,Það hefur komið mér á óvart hversu rólegir við erum búnir að vera,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður íslenska landsliðsins fyrir æfingu liðsins í Rússlandi í dag.
Íslenska liðið er að æfa í þriðja sinn í dag en nú er farið að styttast í fyrsta leik á HM, liðið hefur leik á laugardaginn gegn Argentínu.
Meira:
Ítarlegt viðtal við Gylfa í Rússlandi – ,,Ég hélt að það yrði meiri spenna og æsingur í okkur“
Margir í íslenska liðinu hafa gaman af því að fara í golf og hefur Magnús Gylfason séð til þess að hægt verður að grípa í kylfu í frítíma.
Magnús er í landsliðsnefnd og er afar vel liðinn í hópnum, hann er sagður maðurinn sem að bjargar öllu.
,,Við erum komnir með golfkylfur, Maggi Gylfa reddaði þeim. Við tökum chipp keppni í dag eða á morgunn,“ sagði Gylfi Þór um málið.