fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433

Zidane sagði ekki orð við Bale eftir úrslitaleikinn

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 27. maí 2018 11:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid fagnaði sigri í Meistaradeild Evrópu í gær en liðið mætti Liverpool í úrslitum í Úkraínu.

Leikurinn byrjaði fjöruglega en eftir aðeins hálftíma þurfti lykilmaður Liverpool, Mohamed Salah, að yfirgefa völlinn meiddur. Mikið áfall fyrir Liverpool en stuttu síðar missti Real mann af velli eftir meiðsli, bakvörðinn Dani Carvajal.

Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn en snemma í þeim síðari komust spænsku risarnir yfir. Loris Karius gerði sig þá sekan um hörmuleg mistök í marki Liverpool er hann kastaði boltanum nánast í Karim Benzema sem skoraði.

Sadio Mane jafnaði þó fyrir Liverpool skömmu síðar eftir hornspyrnu og entist forysta Real í aðeins fjórar mínútur. Þá var röðin komin að varamanninum Gareth Bale sem kom inná sem varamaður á 61. mínútu leiksins.

Þremur mínútum eftir það skoraði Bale stórkostlegt hjólhestaspyrnumark eftir fyrirgjöf Marcelo. Bale bætti svo við öðru marki á 83. mínútu með föstu skoti fyrir utan teig sem Karius hefði átt að verja en hann missti boltann inn.

Eftir leik sagði Zinedine Zidane þjálfari Real Madrid ekki orð við Bale. ,,Hann sagði ekkert,“ sagði Bale.

Bale sagði eftir leik að hann íhugaði að fara frá Real Madrid til að spila meira.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stjarnan hafði betur gegn Val – Bjarni Mark fékk heimskulegt rautt spjald

Stjarnan hafði betur gegn Val – Bjarni Mark fékk heimskulegt rautt spjald
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Haaland tæpur fyrir bikarleikinn mikilvæga á morgun

Haaland tæpur fyrir bikarleikinn mikilvæga á morgun
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur