Cristiano Ronaldo leikmaður Real Madrid virðist eitthvað þurfa að stilla miðið sitt fyrir kvöldið.
Ronaldo var að reyna það í gær í Kænugarði fyrir leikinn gegn Real Madrid í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Cristiano var ekki að hitta á rammann en eitt af skotum hans endaði í myndatökumanni.
Boltinn fór beint í hausinn á kappanum sem fékk sár og þurfti að gera að honum.
Ronaldo gaf honum bolinn sinn eftir æfingu í sárabætur.