Það eru 13 ár í dag síðan að Liverpool tryggði sér sigur í Meistaradeild Evrópu síðast.
Liðið leikur til úrslita í þessari sömu keppni á morgun og getur þá unnið þennan merka bikar aftur.
Leikurinn við AC Milan fyrir 13 árum er einn ótrúlegasti knattspyrnuleikur sögunnar.
Liverpool var 3-0 undir en kom til baka og jafnaði leikinn.
Liverpool vann svo leikinn í vítapsyrnukeppni og tryggði sér sigur, ótrúlegt gegn afar vel mönnuðu liði AC Milan.