Maurizio Sarri og hans teymi munu ræða við Chelsea á morgun um að taka við liðinu fyrir næstu leiktíð.
Margir ítalskir miðlar greina frá þessu og þar á meðal blaðamaðurinn virti Tancredi Palmeri.
Sarri hefur yfirgefið lið Napoli á Ítalíu en það var staðfest fyrr í dag. Carlo Ancelotti tók við þar á bæ.
Sarri hefur sterklega verið orðaður við Chelsea í margar vikur en Antonio Conte gæti vel verið á förum í sumar.
Sarri er talinn hafa áhuga á að færa sig yfir til Englands en hann ætlar ekki að þjálfa annað lið á Ítalíu.