Það er nú nánast orðið staðfest að Unai Emery muni taka við liði Arsenal á næstu dögum.
Emery hefur mikið verið orðaður við Arsenal síðustu daga en hann var síðast hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi.
Emery staðfesti það óvart í kvöld á heimasíðu sinni að hann væri orðinn partur af Arsenal fjölskyldunni.
Færslunni var svo eytt skömmu síðar en fjölmargir náðu þó að vista það sem Emery hafði að segja.
Emery tekur við af Arsene Wenger en lengi var talið að Mikel Arteta yrði næsti stjóri liðsins.
Looks like Unai Emery’s official website has already confirmed his move to Arsenal ? pic.twitter.com/m9JyCwq7S8
— Chris Wheatley (@ChrisWheatley_) 22 May 2018
BREAKING: Unai Emery has appeared to confirm his appointment as @ArsenalFC manager via a graphic on his official website. #SSN pic.twitter.com/adHTvdFZhz
— Sky Sports News (@SkySportsNews) 22 May 2018