Starfsmenn New Balance birtu óvart myndir af vara og þriðja búningi Liverpool í dag.
Myndirnar áttu ekki að fara strax í birtingu en þær hafa vakið mikla athygli.
Varabúningurinn vekur mikla athygli en hann er fjólublár.
Liverpool hefur spilað í New Balance búningum síðustu ár en liðið er á leið í úrslit Meistaradeildarinnar.
Búningarnir eru hér að neðan.