Búið er að fresta þremur leikjum í Pepsi deild karla á morgun vegna þess hversu slæm veðurspá er.
Leikur Grindavíkur og Vals hefur verið færður til miðvikudags.
Sömu sögu er að segja leik Stjörnunnar og Fylkis en Stjarnan hefur ekki unnið leik í sumar.
Þá var leikur Breiðabliks og Víkings einnig færður vegna þess hvernig veðrið á að vera.
Leikur KA og Keflavíkur fer hins vegar fram á Akureyri.