Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hefur útilokað það að fá Cristiano Ronaldo til félagsins.
Ronaldo er margoft orðaður við endurkomu til Englands en hann gerði garðinn frægan með einmitt United.
Mourinho og Ronaldo unnu saman hjá Real Madrid en sá fyrrnefndi telur það ekki möguleika að þeir vinni saman á ný.
,,Ég trúi því að Real Madrid geti ekki selt hann. Það er bannað,“ sagði Mourinho við Record.
,,Hann verður að vera áfram þar til þeir leyfa honum að fara og spila eitt ár í Ameríku eða eitthvað svipað. Þetta er lokuð hurð.“