Manchester United vill styrkja vörn sína í sumar og er Toby Alderweireld varnarmaður Tottenham mikið orðaður við félagið.
Tottenham gæti neyðst til að selja Alderweireld í sumar. London Evening Standard segir að United sé tilbúið að borga 40 milljónir punda.
Sumarið 2019 kemur nefnilega klásúla í samning Alderweireld sem gerir honum kleift að fara fyrir 25 milljónir punda.
Alderweireld hefur viljað hærri laun en Tottenham hefur viljað greiða honum.
Sagt er að Tottenham vilji fá Matthijs de Ligt varnarmann Ajax í sínar raðir ef Alderweireld heldur á önnur mið.