Alan Shearer segir að Mohamed Salah, sóknarmaður Liverpool hafi verið besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu.
Salah kom til Liverpool síðasta sumar frá Roma og er markahæsti leikmaður deildarinnar 30 mörk og þá hefur hann skorað 40 mörk fyrir félagið á tímabilinu.
„Það hefði enginn getað spáð fyrir um það, hversu góður hann myndi vera fyrir Liverpool á þessari leiktíð,“ sagði Shearer.
„Salah dró Liverpool í gegnum 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar og var betri þar en Kevin de Bruyne, Salah er leikmaður ársins á Englandi að mínu mati,“ sagði hann að lokum.