Marcos Alonso bakvörður Chelsea hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu.
Ástæðan er sú að Alonso er sakaður um að hafa stigið viljandi á Shane Long framherja Southampton.
Atvikið átti sér stað í leik liðanna um liðna helgi þar sem Chelsea vann 2-3 sigur.
Alonso mun fá leikbann að öllu óbreyttu og mun því missa af undanúrslitum bikarsins um komandi helgi.
Þar mætir liðið einmitt Southampton en Alonso er lykilmaður í liðinu.