Marcos Alonso, bakvörður Chelsea gæti misst af undanúrslitum enska bikarsins um helgina.
Chelsea og Southampton mætast á Wembley þann 22. apríl næstkomandi í undanúrslitum keppninnar en liðin mættust líka í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Alonso var heppinn að fá ekki beint rautt spjald í leiknum þegar hann traðkaði illa á Shane Long, framherja Southampton í leiknum.
Enska knattspyrnusambandið skoðar nú atvikið og ef hann verður fundinn sekur um að hafa brotið af sér þá verður hann dæmdur í bann.
Hann gæti því missta af undanúrslitaleiknum eins og áður sagði en Alonso hefur komið við sögu í 42 leikjum með Chelsea á leiktíðinni.
Þar hefur hann skorað 7 mörk og lagt upp önnur 3 og því ljóst að það yrði mikill missir fyrir Chelsea að missa hann um næstu helgi.