Manchester United sá til þess að í dag varð Manchester City enskur meistari. United tók á móti West Brom á heimavelli, slakasta liði ensku úrvalsdeildarinnar.
City vann Tottenham í gær og með tapi United í dag er liðið orðið enskur meistari þegar fimm leikir eru eftir. United átti afar slakan leik í dag en í fyrri hálfleik hefði liðið átt að fá vítaspyrnu þegar brotið var á Ander Herrera.
Liðið spilaði hins vegar einn af sínum slakari leikjum í vetur og það kom í bakið á þeim á 73 mínútu leiksins þegar Jay Rodriguez tryggði sigur gestanna. Sigur City í deildinni því staðreynd en liðið hefur haft rosalega yfirburði.
Leikmenn City voru ekki saman þegar tíðindin bárust en Vincent Kompany var heima hjá tengdafjölskyldu sinni.
Mynd af því er hér að neðan.