Björn Bergmann Sigurðarson framherji Rostov var hetja liðsins í úrvalsdeildinni í Rússlandi í dag.
Rostov fékk Khabarovsk í heimsókn en Sverrir Ingi Ingason var ekki í leikmannahópi Rostov.
Ragnar Sigurðsson var á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá Rostov og lék allan leikinn.
Rostov vann 1-0 sigur en eina mark leiksins skoraði Björn Bergmann á 40 mínútu.
Rostov situr í 10 sæti deildarinnar með 30 stig eftir 26 leiki.