Trent Alexander-Arnold bakvörður Liverpool hefur verið magnaður á þessu tímabili.
Þessi ungi hægri bakvörður hefur eignað sér stöðu í liði Jurgen Klopp.
Alexander-Arnold er 19 ára gamall og hann gerði nýjan samning við Liverpool síðasta sumar.
Liverpool ætlar hins vegar að verðlauna Alexander-Arnold fyrir góða frammistöðu og bjóða honum nýjan og betri samning í sumar.
Nú berast svo þær fréttir að Gareth Southgate ætli að taka Alexander-Arnold með á HM í sumar.