Roma tók á móti Barcelona í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna.
Það voru þeir Edin Dzeko, Daniele De Rossi og Konstantinos Manolas sem skoruðu mörk Rómverja í gær og liðið fer því áfram í undanúrslit keppninnar á útivallarmarki.
Ótrúleg úrslit hjá Roma en það sá ekki nokkur maður fyrir að svona myndi fara í leiknum.
Spænskir fjölmiðlar hökkuðu Barcelona í sig í blöðunum í morgun og þar fá þeir forsíðuna.
,,Fall án afsakana,“ skrifar Sport á forsíðu sinni en kröfurnar voru um að Barcelona færi áfram.
Forsíður blaðanna er hér að neðan.